jó hómís

úje

15.05.2008 14:59:51 / gudny

sumarið er tíminn :)

já hvað segiði þá... ekkert langt síðan síðast er það ? 8mánuðir .. hvað er það milli vina ha ? :)

en já allavega þá ákvað ég að blogga því ég nenni ekki að læra, er að fara í síðasta prófið mitt á morgun sem er spænska og ég verð eiginlega að ná því svo ég geti haldið áfram í sumar svo ég geti eitthverntíman útskrifast. sem verður btw með 90 árgangnum 8| gaman fyrir mig að dimmitera hehehe...

en já sumarið er að koma og það er geggjað veður úti og ég er inni :( í sumar verð ég "gauja í horninu" "gudda beiker" eða kanski bara Guðný :) líst best á það.. ég verð allavega ekki pottapíka svo eitt er víst hehe... en já ég verð semsagt að vinna á Galító - þar sem djammið lifir ehem...  í sumar... sem er alveg ágætt en hefði viljað komst í vinnu sem er frá 8 - 5 alla virka daga og frí um helgar en svona er þetta bara :) það verður margt um að vera í sumar 2 brúðkaup 2 ættarmót og svo bara djamm er haggi ;)

annars er lítið búið að vera að gerast í mínu litla lífi.. fór um daginn með óla og fleyrum uppá Vatnajökul sem var líka bara þessi ágæta skemtun, bara versta við þessar jeppaferðir eitthverstaðar í afdölum er að vera kvennmaður með lélega partýblöðru og sættir sig ekki við hvaða klósett sem er (ég semsagt) hehe. en ég lét mig hafa það að fara á ógeðslegasta kamar í heimi (hann er verri en plast kamrarnir á útihátíðum) og svo að pissa bara úti sem er einnig það versta sem ég geri. ;) en ég hafði það af hehe :P

ég er einnig komin með æði fyrir mótorkrossi, þetta er bara eitt að því skemtilegasta sem ég geri núna.. bara verst að eiga ekki dótið sjálfur, en stefnan í haust er að kaupa crossara og galla http://www.pukinn.com/?vara=hc-1804 ef ég verð ekki töff í þessu í haust þá veit ég ekki hvað 8) ég og Kolbrún fórum að hjóla á sunnudaginn hún var á stóru hjóli en ég bara á 80cc svo ég var að fíla mig í tætlur en Kolbrún toppaði allt með því að prjóna yfir sig og er núna að deyja í analinum hehe :P


en já ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag, þeir sem vilja styrja mig í mótorcross kaupum endilega hafa samband ;)

adios amigos ;**

-Guðný Töffari

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 14:11:01 / gudny

kominn tími til ?

Jæja hvað segiði ? er kominn tími til að blogga...?

Það er ýmislegt búið að gerast frá síðustu færslu... ég er náttúrulega löngu komin heim úr sveitinni og skólinn byrjaður alveg á fullu, næstum hálfnaður.. sjitt hvað þetta er fljótt að líða... svo er maður bara alltaf á Galító, er núna orðin Gudda baker :P no more uppvask for me.. hehe :P

Skellti mér í familyu fer til Akureyrar síðustu helgi og var það bara hin ágætasta skemtun, Halli bróðir er leikari hjá leikfélaginu á Akureyri svo við skeltum okkur á sýningu hjá honum og var það ógeðslega gaman.

Ég verð að viðurkenna það að ég er orðin ansi slöpp í drykkjunni núna sl vikur.. ætlaði svoleiðis að detta íða á AK en nei ég tók með mér 2 kyppur og kom með 1 til baka... góður árangur ha ? En ég fór samt út á lífið með henni Jóhönnu sem er flutt til AK og var það alveg ágætt, þóttist vera 27 ára og sollis skemtilegt, en á laugadeginum var ég sofnuð fyrir miðnætti =o. Helvíti lélegt hjá mér.

Svo er maður bara að vinna alla helgina, en er samt að fara í afmæli til Katrínar í kvöld, já littla barnið í hópnum er loksins orðin 18ára vúhú ;D Til hamingju með það elZkan ;*

Svo styttist alveg óðfluga í afmælið mitt aðeins 5 dagar, þá verð ég orðin 19 ára, örugglega ómerkilegasti aldur ever!

Svo er líka rauða saumavélin aka Bíllinn minn bílaður L búinn að vera það í 3 vikur eða eitthvað, héldum fyrst að þetta væri bara viftureymin en þegar það var búið að skipta um hana þá fór hann bara ekki í gang, þá er víst altonatorinn ónýtur, þannig að ég er bara búin að vera á bílnum hans Óla sem er samt ekkert slæmt sko ;)

Jón Valur bróðir er að koma í heimsókn á sunnudaginn verður hérna í viku ca hlakka geðveikt til að hitta hann J ekki búin að sjá hann síðan í mai.

Varð skella inn einni mynd af afmælisbarninu svona í lokin

 katrín ;*Ég og Bjarki á AK 

Ég og Elva á AK

En ég held að  þetta sér orðið ágætt hjá mér núna,,

Blelbe :**

-Guðný


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 21:17:50 / gudny

only six days

jæja nú fer þetta allt að stittast.. sumarið fer bara að verða búið bráðum... og ég á aðeins 6 daga eftir í sveitinni þá er ég alkomin heim... :D:D:D hlakkar ekkert smá mikið til...

annars er svo langt síðan ég bloggaði og margt búið að gerast...

t.d. eins og írskir dagar.. var það heppin að vera í fríi þá og skemti mér alveg helvíti vel á Lopapeysunni :P annars var frekar skrítið að vera í fríi.. hef alltaf verið að vinna á Galító síðustu írsku daga og hef alltaf bara rétt svo komist á ballið...

 

skellti mér síðan á ættarmót um daginn í Skorradalnum sem var ágætis skemtun, þótt að kuldi hafi aðeins truflað svefnin og maður hafi skriðið uppí til mömmu eins og smábarn þá var það samt helvíti kósí :P laugardagskvöldið klúðraðist samt aðeins og ég og Kári létum sækja okkur og fórum heim.

 

Annars er maður kominn í sveitina og er búin að vera þar síðustu 10 daga þannig að það er lítið að frétta af mér.

 

Danskir dagar fara að skella á og er planið að skreppa þangað í smá útilegu.

 

Pabbi gamli verður svo 50 ára á morgun.. svo ég óska honum bara til hamingju með það.

 

annars hef ég ekki meira að segja.. hlakka bara til að komast heim og þurfa aldrei aftur að klæðast þjónabúning... alveg leiðinlegustu föt sem ég veit um... !!

 

- Guðný


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 17:58:12 / gudny

round 2

Það er alveg merkilegt hvað maður getur verið misjafn eftir degi, í gær átti ég ágætis dag en dagurinn í dag er gjörsamlega búinn að vera ömurlegur... búin að taka nokkur grátköstin og stundum langar mér bara heim... það er aLveg þvílíkt hvað manni getur leiðst mikið á þessu pleisi...

 

en já allavega þá er ég komin aftur í sveitina eftir mjög gott og notalegt frí... það má eginlega segja það að ég hafi komið aftur með stæl... já gott fólk ég keyrí víst útaf á leiðinni... slapp samt alveg helvíti vel miðað við aðstæður hefði þetta getað farið þúsundsinnum verr en eg og bíllinn erum ómeidd.

 

það liggur við að maður telji niður hvenar maður kemst aftur í frí, það er alveg mega óþæginlegt að vera hér ef ég er í pásu að komast ekki neitt, bara inní herbergi og leggja sig eða eitthvað. það er alveg ógeðslega óþæginlegt að búa í vinnunni. Ég verð komin heim aftur 6 júlí þannig að ég fæ loksins að gera eitthvað á írskum dögum annað en að vinna.

 Er líka aðeins að vonast til þess að ég fái kanski að skjótast á ættarmót tiil óla á laugardaginn bara sona til að hitta hann og komast í annað andrúmsloft, en annars er bara allt sæmilegt að frétta eftir þessa sorglegu færslu hlakka bara til að sjá ykkur eftir 9 daga :***

 

-Guðný


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 16:16:57 / gudny

heimþrá ?!?

jæja núna er ég komin í sveitina og ákvað að láta vita af mér að ég sé á lífi... sveitalífið er búið að vera frekar slaft hingað til en vonadi á það eftir að lagast með tímanum, "renslið" okkar sem þjónar var áðan og með smá klúðri heppnaðist þetta bara alveg ágætlega, er í pásu núna fram að kvöldmat, ég og iðunn fengum smá frí í gærkvöldi og var það alveg dýrslegt, skruppum aðeins niðrá skaga og þótt það hafi bara verið á miðvikudaginn sem ég fór þá var alveg geggjað að koma aftur... kann ekki alveg að vera svona í burtu, hef aldrei farið að heiman áður... núna er ég bara að bíða eftir að fá vaktarplanið mitt svo ég getir planað eitthvað sumarð samkvæmt því... langar alveg geggjað mikið að fara á bíladaga því það eru allir að fara þangað... en já yfir í allt aðra sálmaa...  

litli stóri bróðir minn er nú fluttur til Noregs... sakna hans alveg heví mikið, þótt við höfum kanski ekki alveg verið bestu vinir í gegnum tíðina en þa var það aðeins farið að lagast, vorum allavega farin að geta talað saman eins og venjulegt fólk án þess að rífast... en já þessi turrtildúfa var að trúlofa sig í gær.  

  en ég hef ekkert mikið meira að segja núna, þannig að þið hafið það bara gott og við heyrumst síðar... endilega skrifði nú sona eins og eitt lítið komment svo ég viti hvort þið séuð eiithvað að fylgjast með þessari síðu hjá mér :P 

...untill next... 

-Guðný  

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 18:54:04 / gudny

sumarfrí

jæja þá er skólinn loksins búinn, og það er alveg frábært að vera kominn í sumarfrí, hefði samt vijað að prófin hafi gangið betur en þetta kemur vonandi allt saman á endanumÉ. það er rétt svo 3 vikur þangað til ég fer að vinna uppí sveit og mér kvíður alveg helvíti mikið fyrir því. það er samt annars lítið að frétta nema það að ég sé flutt á Hagaflötina og búin að koma mér fyrir :)

  ég hef fundið leið til sigurs,

inní mína framtíð nú ég geng. 

helgin var rosalega róleg, var í extra helgarfríi sem er bara næs. Skrapp uppí Ölfusborgir í gær og það var bara helvíti skemtilegt, Magga Elfa tók bústað og ég Malla og Doddi skeltum okkur í heimsókn, byrjuðum á því að fá okkur pizzu á Eldsmiðjunni og skelltum okkur svo upí bústað. Ég var bara edrú og keyrði bara, síðan fóru ég, Unnur, Jón Valur og kæróið hans á djammið á Selfossi !!! Sem var sosem fínt.

 ég hef hent í burtu hatrinu,

hatrinu á sjálfri mér

það er gott að búa í örmum þér.  

hef samt voðalega lítið að tala um hérna, en fanst koma tími til að helda inn einni færslu

 -Guðný  

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 23:02:28 / gudny

gleðilegt sumar

já það er alveg ótrúlegt hvað maður er latur við að skrifa færslur hérna, en þar sem ég er ný komin úr vinnuni og hef enganveginn neitt að gera á föstudagskvöldi ákvað ég að blogga svona aðeins...

páskarnir eru liðnir og voru þeir helvíti afslappandi gerði voðalega lítið helst í fréttum er það samt að ég er að fara að flytja, er hætt að reykja og er komin með vinnu í veiðihúsi á þverá í Borgarfirði þannig nó HB for me þetta sumarið.

Það e aðeins vika eftir af skólanum og er ég ekki alveg klár á því hvar ég stend þar,, vona bara að prófin gangi vel svo ég nái nú eitthverntíman að útskrifast.

Ég og Iðunn skelltum okkur í helvíti skemtilega Reykjavíkur ferð seinasta föstudag, byrjuðum á því að fara í kringluna og eiða peningum of course ! svo fórum við á Reykjavík pizza company og fengum geðveika pizzu skeltum okkur svo á skauta og var það meget fön kynntumst tveim uppáþrengjandi littlum stelpum sem elltu okkur útum allt og vissu ekki hvað hvalfjarðargöngin voru !     fórum svo í Bíó á myndina because i said so! Klikkuð mynd. :P Laugardagurinn fór svo bara í djamm og meira djamm... eg iðunn og Inga vorum heima hjá Iðunni að horfa á Söngvakeppnina, vá hvað Helga Braga og hin konan voru ekki að meika það... frekar glataðar... annars ágætis keppni skeltum okkur svo til Líney og svo á „heitasta“ staðinn í bænum... Já þetta er svosem allt og sumt...

En verð að deila með ykkur þessum myndum síðan í gamladaga þegar við vorum að „MEIKAÐA“ í körfu ;)

 

Sjáiði taktana í snædísi þarna á kantinum ha ;)

 

Og ég hérna þessi litla númer 6 alveg að meikaða í frákastinu :P

 

En ég held að þetta sé orðið gott -Guðný

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 20:31:35 / gudny

work it out

Seinustu daga eða viku er ég búin að eyða dögunum með sjálfri mér, hugsanir búnar að fara hring eftir hring í hausnum á mér og ég búin að sökkva dýpra og dýpra, ekki að þetta hafi verið eitthvað skemtilegt en samt er ágætt að vera bara með sjálfum sér, tala ekki við einn né neinn.. margar hugsanir sem eru farnar að angra mann meira og meira og eru að gera útaf við mig, á morgnana hefur mér ekki langað að fara á fætur, ekki yfir því að ég skuli þurfa að fara í skólann heldur það að ég þurfi að takast á við enn einn daginn. Já það er erfitt að vera til. Er búin að vera núna í helgarfríi og var komin í aðeins betra skap og hefði viljað eiða helginni í góðra vina hópi en föstudagurinn var ekki uppá sitt besta, þar sem Óli lét sig hverfa í jeppaferð yfir alla helgina og Iðunn uppí sumabústað hafi ég ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera. klíndi mér í mat till Gunna eða hann er samt búinn að bjóða mér að koma hvenar sem ég vil að fá mér að borða þannig að ég tók því bara, hékk þar nánast allt kvöldið og horfði á X-factor þar sem var vittlaust veður úti og ég var búin að lána pabba bílinn minn. Fór síðan bara heim og var þar enn og aftur ein með sjálfri mér og sofnaði bara yfir sjónvarpinu. Á Laugardaginn fór ég í 3 ára afmæli til Anítu minnar sem var hið ágætasta krakka afmæli. Var alveg orðin desperat um að komast út að hitta fólk þá vildi svo heppilega til að Líney hafi tekið að sér aukavakt og mamma hennar og pabbi kröfðust þess að fá að hafa pjakkinn yfir nótt því eftir að Líey flutti út er náttlega allt örðuvísi að fá hann því hann er nú að fara í alvörunni í heimsókn til ömmu og afa. Þegar Líney vasr búin að vinna skeltum við okkur beint í bjórinn og eddie og félagar kíktu á okkur, þetta var alveg helvíti skemtilegt kvöld og gaman að kynnast nýju fólki leiðin lá á mörkina um 2 og var að alveg ágætis skemtun en v ið vorum nú samt farin áður en það lokaði. Ég endaði svo kvöldið á krúsi með Önnu og Katrínu svona uppá gamla tíma að gera.

 

hef ekkert meira að segja

blessó

-Guðný 


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 16:14:35 / gudny

mæli með því að mæta í skólann, þú veist aldrei hvar löggan gæti verið ;)

Þegar maður er í skóla þá getur orðið mjög svo freistandi að skrópa í tíma... Ég og Iðunn ákváðum það um daginn að nenna ekki í tíma og kíktum á krúsið... ekki frásögufærandi nema það að ég var rétt svo lögð af stað þegar bláu ljósin byrtast fyrir aftan mig... Já ég var stoppuð af lögguni held ég bara i fyrsta skipti fyrir utan eithvað tjékk þegar ég var nýkomin með prófið.. og Djöfull er dýrt að vera ekki í öryggisbelti... jafn mikið og að keyra of hratt var mér sagt um daginn... en ég samt skil þetta ekki... ég veit alveg að maður á að vera í belti en ég skil ekki hvernig er hægt að sekta mann fyrir það, það er ekki eins og ég sé að stofna öðrum í hættu,, finns eins og ég hefði bara átt að fá áminningu út á þetta... en það er allavega mitt álit á þessu öllu saman... en mér var bara nær.. enda í dag keyri ég ekki af stað fyrr en beltið er spent :P

 

en yfir í allt annað...

 

Það eru búnir að vera opnir dagar í skólanum þessa viku og er það búið að vera helvíti næs.. er búin að fara á ndd námskeið og box námskeið hjá Viðari og lét hann okkur sko alveg finna fyrir því, því ég var ekkert nema harðsperrur eftir þetta... svo var bara sofið út á miðvikudaginn og farið svo á leikritið pabbinn um kvöldið og VÁ það var algjör snillld sá alveg fyrir mér hvernig strákar eiga erfit að höndla meðgöngu kvenna þetta var geðveikt. svo á fimmtudaginn fór ég á fyrirlestur um Frank Zappa og verð ég að segja að tónlistin hanns er ekki á skemtilegri kanntinum.. frekar glötuð tónlist... fór síðan að læra kvöldförðun en lærði nú eithvað lítið á því... svo tók bara undirbúningur við, jámm Árshátiðin var í gær og var hún geðveik.. eða allavega maturinn og það.. stjórnin stóð sig alveg frábærlega og hefði þetta ekki verið betra... og að fá sjálfan Bubba Mortens sem leynigest var náttlega bara snilld... síðan var smá party hjá mér sem var helvíti skemtileg.. Viddi með gítarinn og mér leið eins og í 10 bekk allir gömlu félagarnir komnir saman og skemta sér eins og við vorum vön að gera.. síðan var farið á ball með Pöpunum sem var alveg ágætisskemtun fyrir utan slysið sem varð og allt það, fór samt snemma því ég var ekki að meika þetta lengur... fannst annaðkvort bara vera orðin of edrú eða bara of ,,fullorðin" fyrir þetta... þá fór ég bara heim að lúra.. Takk allir fyrir kvöldið það var geðveikt :*

 

 

Helgin framundan og leggst hún ekkert allt of vel í mig ,, bara vinna eins og alltaf... það verður brjálað að gera , veislur útum allt og svo náttlega þetta ball sem maður verður víst örugglega að vinna á þótt eg hafi ekki svarað því enn... hef svosem ekkert betra að gera þannig why not ?

en ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili 

 

 

-Guðný 


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 20:43:27 / gudny

hitt og þetta

Það er alveg ótrúlegt hvað manni langar oft til að blogga eitthvað en eitthvernegin er eins og maður hafi ekkert að blogga um, eins og það gerist ekkert í þessu fábrotna lífi mínu.. en ákvað sona einu sinni þar sem ég er í fríi í vinnunni að henda inn einni færslu.

Fór á föstudaginn í afmæli til Magga öðru nafni Cörlý Wörlý kjéllinn varð tvítugur og um að gera að halda eina dúndur veilsu á mörkinni.. hún hepnaðist alveg ágætlega þótt ég hafi nú ekki þekt marga þarna inni, en komst samt að því að það var ein stelpa þarna sem ég átti víst að hafa baqrið eitthverntíman í körfuboltaleik =o. leiðinlegt ;P það var líka heví fynið að um leið að klukkan varð hálf 12 hvarf alveg 90% af liðinu, semsagt allir undir lögaldri :P Átti líka frábæran leik í því að detta beint fyrir framan hurðina á mörkini og er ég öll út ötuð í marblettum :$ ekki gaman..

Annars var stór atburður á laugardaginn Mútta gamla hélt uppá 50 ára afmælið sitt í Jónsbúð og var það alveg heljarinnar party eins og Elíasarættinni er einni um lagið, skemtiatriðin voru geðveik og sungið var úr sér röddina. Gunni bró eldaði geðveika súpu og Halli bró hélt stuðinu uppi sem mega góður skemtanna stjóri, Kári frændi átti dansgólfið og var talinn aðal homminn á svæðinu ;) en það fór að taka á gamla fólkið að vera sona lengi úti að ég og fl skeltum okkur á mörkina og var hún nú ekki alveg að meika það, hef sjaldan upplifað sona glatað kvöld á mörkinni. Síðan var bara tekið smá krúz með Ragneiði minni og haldið svo heim í háttinn.

En ég held að þetta sé komið ágætt, ætlaði bara aðeins að láta heyra í mér það er nú ekki oft sem maður bloggar ;P en endilega farið að skirfa eithver komment svo manni langi til að halda áfram með þessa síðu

adios

-Guðný


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 12:11:45 / gudny

school...

ójá kjéllan bara sest á skólabekk aftur.. meget fun.. ehe.. ákvað að henda inn einni færslu sona uppá fönnið..

það er nú ekki margt búið að gerast í mínu lífi.. annars átti ég ágætis jól og allt sem því fylgdi áramótin voru æði, fór í mat til Guðrúnar og sprengdum þar upp og sollis síðan kíkti ég á óla og við fórum á ballið sem var samt ekki uppá marga fiska verð ég að segja,,

á sunnudaginn fór ég í 12 tíma jeppaferð eitthvert útí buskan.. var að reyna að fylgjast með á leiðinni hvert við værum eiginlega að fara að það var allt gleymt og grafið á heimleiðinni... landafræði er eitthvað sem ég kann ekki.. ;P annars var þetta bara heví skemtileg ferð þótt ég mæli ekki með því að vera stelpa í sona ferð og þurfa að pissa úti í 13 stiga frosti eithverstaðuar uppá jökli... ekki sniðugt ..

annars er merkur áfangi í lífi móðir minnar í dag,, kjéllan er komin á sextugs aldurinn .. já hún er 50 ára í dag þessi elli smellur... pælið í því að vwra búin að lifa í 50 ár.. held að það sé ekkert spennandi :P bara vera alltaf 18 þá er lífið yndislegt :)

eru við ekki líkar ? ;P

en allavega til hamingju með afmælið mútta mín ;**

-Guðný


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 18:38:53 / gudny

life is life

Jæja kanski kominn tími á að skrifa eina færslu eða svo ?

verit samt ekki hvar ég á að byrja svo margt að segja en samt eiginlega ekkert að segja :$

Er að klára seinustu vikuna í Frystihúsinu.. good hlakka til þegar það er búið... er komin með ógeð, og vonandi get eg farið að borða fisk aftur án þess að huxa um alla ormana og svona skemtilegt ;P Var líka að frétta að það ætti að kveðja mig með stæl, Kolla ætlar víst að ,,busa" mig á föstudaginn.. :P

Desember mánuður er búinn að vera fokk erfiður.. gjörsamlega búið að misþirma manni í vinnu og öðru leiðinlegu... hélt að desember ætti að vera skemtilegur mánuður.. en það eru bara 5 dagar til jóla og þá fær maður loksins langþráð frí.

Seinasta helgi hjá mér var ekki uppá marga fiska verð ég að segja.. var að vinna til hálf 2 á föstud. og ég er ekki sú besta í því að fara snemma að sofa þótt ég viti að ég þurfi að vakna snemma.. fór að sofa um 4 leytið og var vöknuð kl hálf 9 og brunaði í stykkishólm. Ekki hélt ég það að næsta ferð í hólmin væri til að kveðja félaga fyrir fullt og allt :( Fór í jarðarför hjá Valla og var þetta eitt af því erfiðasta sem ég hef gert.. Afhverju þurfa ungir að deyja líka.. akkuru getur maður ekki bara dáið þegar maður er bara gamall og búinn að gera allt sem maður ætlaði sér í lífinu en ekki eins og Valli, deyja í hræðilegu bílslysi aðeins 22 ára gamall, rétt í blóma lífsins.

Ég varð að stoppa stutt í hólminum því ég þurfti að fara að vinna, fór að vinna kl 7 og strax eftir það að vinna á ballinu til 5 r sum.. og vá hvað ég ætla mér aldrei að vinna á balli aftur, þetta var alveg hallærislega glatað og fokk leiðinlegt.. hefði svo verið til í að skemta mér þarna í góðra vinahópi og fá sér kanski aðeins í tánna ;P Það er líka alveg ótrúlegt hvað 16-17 ára krakkar eiga auðvelt með að komast inn og rífa bara kjaft ef það á að henda þeim út.. Löggna mætti meira segja á svæðið en fann engan undir lögaldri.. alveg furðulegt hvernig hún fór að því...

Mér langar að komast í jólaskap.. er búin að hlusta á jólalög í allan dag án árangurs.. er greynilega ekki þetta sígilda -jólabarn- á samt bara eftir að kaupa eina jólagjöf.. kanski útaf því að jón valur keypti allar hinar fyrir mig ;) hann getur verið ágætur þessi elska þótt hann sé alveg pain in the fkn ass,,,

Aðalheiður var að skýra prinsessuna sína og heitir hún Alexandra Erla. geðveitk flott nafn.. Til hamingju með þetta og fyrirgefðu að ég kom ekki í skírnina ég bara varð að sofa sorry ;* var samt búin að kaupa skírnargjöf og ég kem með hana til þín við tækifæri ;*

Annars held ég að ég hafi ekkert meira að segja ykkur úr mínu fáborna lífi..

Líney ég lofa að blogga aftur með kanski aðeins mina millibili hehe ;P

adios

-Guðný


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 19:56:58 / gudny

Say No More

jéáw... allir hressir.. sjitt hvað tíminn er fjótur að líða,, vikurnar bara fljúa frá manni og það eru bara alveg að koma jól... og bráðum verð ég komin aftur í skólann... jeijj :$ kvíður samt p´pinu fyrir að fara í skólann,, allt fullt af nýju fólki sem maður þekkir ekki rass...! any ways...

fór í alveg mega massa staffa djamm hjá fískifólkinu, djammið byrjði snemma eða um 18,30 var fyrsti bjórin opnaður, Ég og Kolla kíktum krúz og svo í teiti til selmu skvízu ;P síðan lá leiðin í annað party og þar var bara allt frystihúsið mætt í góðum gír,, stundum tók það tíma að átta sig á því hver var hver.. því við vorum ekki í ljótum fötum, hvítum slopp og geggjað hárnet! :P síðan var farið að éta á Galító... Þar sem Doddi kokkur tilkynti mér að hafa hemil á þessu liði.. sem var mjög erfitt þannig að ég gafst bara upp... :D á Galító var skellt enþá meira í sig og var tekíla málið, þegar þjónarnir voru komin með ógeð á okkur lá leiðin á mörkina en ég skelti mér í RoadTrip með Kollu uppí Húsafell... ferðin byrjaði vel.. engin hálka þannig að bíllinn var bara botnaður.. en þegar við vorum komnar langleiðina í Reykholt byrjaði djammið for real! Vorum ekki alveg með landakortið á hreinu þannig að ófá símtöl í strákana varð meira segja til þess að bið urðum báðar inneignarlausar great! snjóbylur og hálka átti sér síðan stað í Reykholtinu þannog að bíllinn komst ekki hraðar en 30 því við sáum valla næstu stiku, ófá skipti þar sem hoppað var útúr bílnum til að skafa á skilti til að vera vissar um hvar við værum, tókum vitlausa beyju og enduðum næstum oní á þar festist bíllinn og massinn ég fór út að ÍTA í þessu geðveika veðri. En loksins vorum við komnar í Húsafellið og þar var bara skellt sér í pottinn og haft það kósí til 7-8 um morgunin.. á Laugardeginum var hent sér á snjósleða og fjör ég og kolla fórum síðan aftur uppá skaga því kolla þurfti að vinna, en eftir vinnu var brunaði aftur uppeftir og þá ég við stírið og verð ég að segja að það gekk aðeins betur ;) enda aðeins betra veður :P EN.. þá vorum við svo pottþéttar á því að rata að við keyrðum framhjá! sáum ekki RISAST'ORT skilti sem stóð á VELKOMIN TIL H'USAFELL !     Þannig að við snérum við á þrengsta vegi ever og það tók sinn tíma.. en komumst þó,, þá var bara haldið áfram að djamma.. en sa,t var þetta ekki eins gaman og á föstudeginum.. en við fengum þó að læra táknmál.. say nó more, og eina pulsu með öllu og remólaði ofáná ;P þetta var alveg geðveikt gaman.. svo á sunnudeginum fór ég í bíó með Kollu Petru og Þorbirni á Mýrina hún er geðveikt góð,,

eins gott að þetta djam hafi verið svona skemtilegt því ég á eftir að vinna allar helgar fram að jólum só nó djamm for mí :(

-Guðný


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 19:35:53 / gudny

sick and tierd

veikindi eru ekki vel liðin hjá mér, er búin að sitja heima í allan dag að gera ekki neitt,,, geðveikt gaman,, það er neblega þannig að ég verð ekki "löglega" veik þeas fæ ekki hita, ælupest eða þh... ligg bara uppí sófa með hósta, hálsbólgu, kvef og beinverki very fun ! er samt búin að stitta mér stundirnar með því að bæta myndum inn á síðnua mína,, myndir frá spáni og verzló :)

annars er lítið að frétta.. Árni Freyr er búinn að kaupa sér nýjan bíl og bauð hann mér krúz á föstudaginn, ákvað að taka; með mér 2 bjóra svona afþví ég var með driver ;) Nanna joinaði okkur og var þetta hin besta skemtun, kíktum á mörkina í eina sígó eða svo því bíllinn er auðvitað reyklaus,, fékk ég og árni nönnu til að fá sér nokkra bjóra með mér,, ásam nokkrm skotum sem árni kom oní okkur :P un 12 ákváðu þau að fara heim á leið.. en ég rétt að komast í girinn hryngdi í steffy og hun var game í djamm... og var það ágætis skemtun :P

á laugardeginum var síðan pige djamm..- we make a great team ! Ég Nanna og Líney, byrjað var að sötra heima hjá árna og nönnu, árni was like a slave :P blandaði í glösin og fleyra  ;) thx hun (kosskall) Katy fékk síðan að joina hópinn :P singstar, drykkjuleikir og bush? fengu einnig að vera með..leiðin lá síðan á "eina og aðal" pöbbin á skaganum mörken ! þar splittaðist pige klubben eða líney altaf að tínast ;P

no more for me to say so bless..

-Guðný 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 15:23:17 / gudny

Pókerface

Núna undanfarið hef ég verið að velta mér uppúr því hvort það sé hægt að hata og elska sömu manneskjuna á sama tíma ? Elska hana vegna þess að þú virðist verða að geða það, finnt þú ekki geta gert annað en hatað hana fyrir allt það sem hún hefur gert þér og látið þér líða illa yfir æfina ?!? Þessi hugsun er búin að vera í kollinum á mér í frekar lanan tíma,langar að segja viðkomandi hvernig mér líður og láta hana vita hvað hún hefur gert mér og hvað ég hef mátt þola í gegnum æfina en eithvernegin´þá hef ég það ekki í mér og byrgi það inni. Frekar óþæginlegt.

Annars var ég að horfa á Kompás í gær - ótrílegt en satt. Og það var verið að nota ,,tálbeitu" til að kaupa eiturlyf í RVK og vá það tók 16 ára ungling eitthvað um 20 mín eða svo að verða sér út um fíkniefni.. 12-13 ára krakkar eru farnir að fikta við þetta eins og að 12 ára krakki var ekin með e-töflur... þegar ég var 12 ára vissi ég rétt svo hvað sígarettur væru því foreldrar mínir reyku... Þetta er alveg ótrúlegt hvað þetta allt saman er fljótt að breytast.. og hvað dóp er orðið sjánlegt.

anyways þá er ekkert mikið að frétta af mér, maður er víst orðinn 18 ára og búin að stunda mörkina óspart síðan ;P annars er maður bara á fullu að vinna og gerir ekki mikið fyrir utan það.

 

I hate that you changed.
I hate that you’re the same.
I hate that you left.
I hate how you’ve stayed.
I hate how I cry.
I hate how you make me smile.
I hate how I miss you.
I hate how I feel.
I hate how it hurts.
I hate that it’s my fault.
I hate that it’s yours.
I hate that I can’t be around you.
I hate how I’ve lost you.
I hate how I’ve found out who you really are.
I hate that I can’t tell you any of this.
But most of all,
I hate how I can’t hate you,
Not even a little.
I hate how I still love you.

-Guðný - Pókerface

  • laughing og the outsie, crying og the inside

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7